Eldflaugamaðurinn mætir þeim elliæra Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 23. september 2017 09:00 Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafa átt í hatrömmum deilum undanfarið. Þeir hóta hvor öðrum gereyðileggingu og kalla hvor annan geðsjúkan. Nordicphotos/AFP Samskipti Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hafa ef til vill ekki verið stirðari síðan á dögum Kóreustríðsins um miðja síðustu öld. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur uppnefnt Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, „Eldflaugamanninn“ en sá síðarnefndi segir Trump elliæran. Tvímenningarnir hafa jafnframt hótað að gereyðileggja ríki hvor annars. Kim brást í gær við nýjum viðskiptaþvingunum sem Trump fyrirskipaði gegn einræðisríkinu á fimmtudag sem og eldræðu forsetans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna frá því á mánudag þar sem forsetinn hótaði fyrrnefndri gereyðileggingu ef Kim-stjórnin myndi ekki stöðva kjarnorkuáætlun sína. Sendi Kim frá sér fyrstu tilkynninguna sem nokkur leiðtogi Norður-Kóreu hefur gefið út á ensku. „Jómfrúarræða Bandaríkjaforseta á sviði Sameinuðu þjóðanna veldur alþjóðasamfélaginu áhyggjum og er til þess fallin að auka á togstreituna á Kóreuskaga. Ég taldi að hann myndi flytja ræðu ólíka þeim sem hann flytur venjulega. En hann var langt frá því að segja nokkuð sem gæti slakað á togstreitunni heldur var hann fádæma dónalegur og bullaði meira en nokkur Bandaríkjaforseti hefur nokkurn tímann gert.“Donald Trump hefur kallað Kim „Rocket Man“ og vísað þannig í þekkt lag eftir Elton John.nordicphotos/AFPNorður-Kóreumaðurinn ráðlagði Trump að vanda orðaval sitt og sagði hegðun hans á allsherjarþinginu „geðsjúka“. Ræða Trumps hefði í raun verið stríðsyfirlýsing og myndi stjórn Kims hugsa vandlega um hvernig henni bæri að svara. „Ég veit ekki við hvaða svari Trump bjóst en svarið verður stærra en hann hefði getað ímyndað sér. Ég mun á afdráttarlausan hátt temja þennan elliæra og geðsjúka Bandaríkjamann með eldi mínum,“ segir enn fremur í yfirlýsingu Kims. Trump svaraði Kim á Twitter í gær. „Kim Jong-un frá Norður-Kóreu, sem er augljóslega geðsjúklingur, er sama þótt hann svelti og drepi þjóð sína. Nú mun reyna á hann sem aldrei fyrr,“ tísti Bandaríkjaforseti. Frá því Kim tók við taumunum í Norður-Kóreu, eftir andlát föður hans, hefur ríkið gert mun fleiri kjarnorku- og eldflaugatilraunir en áður. Ri Yong-ho, utanríkisráðherra Norður-Kóreu, sagði í gær að svar Asíuríkisins gæti falist í kjarnorkutilraun á Kyrrahafi. „Þetta gæti orðið aflmesta vetnissprengja sem prófuð hefur verið á Kyrrahafinu,“ sagði Ri. Ráðherrann bætti því þó við að hann hefði í raun ekki hugmynd um hvernig ætti að svara Bandaríkjaforseta, það myndi Kim einn fyrirskipa. Japanar voru hins vegar ekki hrifnir af orðum Ri, enda hefur Norður-Kórea skotið tveimur eldflaugum í gegnum japanska lofthelgi undanfarinn mánuð. „Orð Norður-Kóreumanna ögra öryggi og stöðugleika á svæðinu. Þau eru algjörlega óásættanleg,“ sagði Yoshihide Suga, talsmaður ríkisstjórnarinnar. En á meðan leiðtogar Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hnakkrífast reyna Kínverjar og Rússar að róa þá niður. „Allir aðilar ættu að halda aftur af sér frekar en að reyna að ögra hvor öðrum,“ sagði Lu Kang, talsmaður utanríkisráðuneytis Kínverja, við blaðamenn í gær. Dmitry Peskov, talsmaður ríkisstjórnar Vladimírs Pútin í Rússlandi, tók í sama streng. Sagði hann að yfirvöld í Moskvu hefðu „miklar áhyggjur af þessari vaxandi spennu“. Donald Trump Birtist í Fréttablaðinu Norður-Kórea Mest lesið Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Innlent Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Innlent Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Innlent Borgarstjóri á hvolfi hátt yfir Reykjavík Innlent Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Innlent Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Innlent Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Innlent Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Erlent „Hver sofnaði á verðinum?“ Innlent Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Innlent Fleiri fréttir Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette Flæmskur aðskilnaðarflokkur sækir í sig veðrið Færeyskir atvinnurekendur segjast hafðir að spotti Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Vendingar í leit að sjónvarpslækni 39 ára karlmaður í haldi vegna árásarinnar á Mette Frederiksen Frederiksen slegin í miðborg Kaupmannahafnar Framkvæmdastjórn ESB gefur Úkraínu grænt ljós Írar kjósa til Evrópuþings Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum Frægs sjónvarpslæknis leitað Vill brottvísa hælisleitendum sem fremja alvarlega glæpi Stefnir í óefni náist samningar ekki í bráð Lést á leið til Normandí 80 árum eftir D-dag Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann Leit Trump að varaforsetaefni að komast á skrið „Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu Fjórir létust í lestarslysi í Tékklandi Trump líklega sviptur byssuleyfinu í kjölfar dómsins Áttatíu ár frá innrásinni í Normandí Sá fyrsti til að greinast með H5N2 lést af völdum veirunnar Hótar því að sjá öðrum fyrir vopnum til að gera árásir á Vesturlönd Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla Segir stjórnarandstöðuna hafa kynt undir hatri árásarmannsins Biden herðir tökin á landamærum í aðdraganda kosninga Sjá meira
Samskipti Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hafa ef til vill ekki verið stirðari síðan á dögum Kóreustríðsins um miðja síðustu öld. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur uppnefnt Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, „Eldflaugamanninn“ en sá síðarnefndi segir Trump elliæran. Tvímenningarnir hafa jafnframt hótað að gereyðileggja ríki hvor annars. Kim brást í gær við nýjum viðskiptaþvingunum sem Trump fyrirskipaði gegn einræðisríkinu á fimmtudag sem og eldræðu forsetans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna frá því á mánudag þar sem forsetinn hótaði fyrrnefndri gereyðileggingu ef Kim-stjórnin myndi ekki stöðva kjarnorkuáætlun sína. Sendi Kim frá sér fyrstu tilkynninguna sem nokkur leiðtogi Norður-Kóreu hefur gefið út á ensku. „Jómfrúarræða Bandaríkjaforseta á sviði Sameinuðu þjóðanna veldur alþjóðasamfélaginu áhyggjum og er til þess fallin að auka á togstreituna á Kóreuskaga. Ég taldi að hann myndi flytja ræðu ólíka þeim sem hann flytur venjulega. En hann var langt frá því að segja nokkuð sem gæti slakað á togstreitunni heldur var hann fádæma dónalegur og bullaði meira en nokkur Bandaríkjaforseti hefur nokkurn tímann gert.“Donald Trump hefur kallað Kim „Rocket Man“ og vísað þannig í þekkt lag eftir Elton John.nordicphotos/AFPNorður-Kóreumaðurinn ráðlagði Trump að vanda orðaval sitt og sagði hegðun hans á allsherjarþinginu „geðsjúka“. Ræða Trumps hefði í raun verið stríðsyfirlýsing og myndi stjórn Kims hugsa vandlega um hvernig henni bæri að svara. „Ég veit ekki við hvaða svari Trump bjóst en svarið verður stærra en hann hefði getað ímyndað sér. Ég mun á afdráttarlausan hátt temja þennan elliæra og geðsjúka Bandaríkjamann með eldi mínum,“ segir enn fremur í yfirlýsingu Kims. Trump svaraði Kim á Twitter í gær. „Kim Jong-un frá Norður-Kóreu, sem er augljóslega geðsjúklingur, er sama þótt hann svelti og drepi þjóð sína. Nú mun reyna á hann sem aldrei fyrr,“ tísti Bandaríkjaforseti. Frá því Kim tók við taumunum í Norður-Kóreu, eftir andlát föður hans, hefur ríkið gert mun fleiri kjarnorku- og eldflaugatilraunir en áður. Ri Yong-ho, utanríkisráðherra Norður-Kóreu, sagði í gær að svar Asíuríkisins gæti falist í kjarnorkutilraun á Kyrrahafi. „Þetta gæti orðið aflmesta vetnissprengja sem prófuð hefur verið á Kyrrahafinu,“ sagði Ri. Ráðherrann bætti því þó við að hann hefði í raun ekki hugmynd um hvernig ætti að svara Bandaríkjaforseta, það myndi Kim einn fyrirskipa. Japanar voru hins vegar ekki hrifnir af orðum Ri, enda hefur Norður-Kórea skotið tveimur eldflaugum í gegnum japanska lofthelgi undanfarinn mánuð. „Orð Norður-Kóreumanna ögra öryggi og stöðugleika á svæðinu. Þau eru algjörlega óásættanleg,“ sagði Yoshihide Suga, talsmaður ríkisstjórnarinnar. En á meðan leiðtogar Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hnakkrífast reyna Kínverjar og Rússar að róa þá niður. „Allir aðilar ættu að halda aftur af sér frekar en að reyna að ögra hvor öðrum,“ sagði Lu Kang, talsmaður utanríkisráðuneytis Kínverja, við blaðamenn í gær. Dmitry Peskov, talsmaður ríkisstjórnar Vladimírs Pútin í Rússlandi, tók í sama streng. Sagði hann að yfirvöld í Moskvu hefðu „miklar áhyggjur af þessari vaxandi spennu“.
Donald Trump Birtist í Fréttablaðinu Norður-Kórea Mest lesið Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Innlent Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Innlent Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Innlent Borgarstjóri á hvolfi hátt yfir Reykjavík Innlent Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Innlent Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Innlent Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Innlent Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Erlent „Hver sofnaði á verðinum?“ Innlent Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Innlent Fleiri fréttir Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette Flæmskur aðskilnaðarflokkur sækir í sig veðrið Færeyskir atvinnurekendur segjast hafðir að spotti Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Vendingar í leit að sjónvarpslækni 39 ára karlmaður í haldi vegna árásarinnar á Mette Frederiksen Frederiksen slegin í miðborg Kaupmannahafnar Framkvæmdastjórn ESB gefur Úkraínu grænt ljós Írar kjósa til Evrópuþings Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum Frægs sjónvarpslæknis leitað Vill brottvísa hælisleitendum sem fremja alvarlega glæpi Stefnir í óefni náist samningar ekki í bráð Lést á leið til Normandí 80 árum eftir D-dag Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann Leit Trump að varaforsetaefni að komast á skrið „Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu Fjórir létust í lestarslysi í Tékklandi Trump líklega sviptur byssuleyfinu í kjölfar dómsins Áttatíu ár frá innrásinni í Normandí Sá fyrsti til að greinast með H5N2 lést af völdum veirunnar Hótar því að sjá öðrum fyrir vopnum til að gera árásir á Vesturlönd Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla Segir stjórnarandstöðuna hafa kynt undir hatri árásarmannsins Biden herðir tökin á landamærum í aðdraganda kosninga Sjá meira